UM VÖRUNA
- Ný týpa frá Nike sem er afsprengi af einum allra vinsælasta og þekktasta hlaupaskórnum frá Nike Nike Pegasus.
- Pegasus Turbo er sérstaklega hannaður til að þjóna þeim hlaupurum sem eru að keppa og að vinna að því að bæta tímana sína.
- Skórinn hentar sem keppnisskór eða skór fyrir þá sem hlaupa mikið og eru að notast við fleiri en eitt par af skóm. Skórinn hentar í öll hlaup allt frá stuttum hlaupum eins og 2-5 km. og upp í heilt maraþon.
- Stærsta breytingin á Pegasus á Turbo og hinum venjulega Pegasus 35 er að Turbo er með sóla úr sérstöku Nike Foam X sem er mýksti sólinn sem Nike framleiðir.
- Einnig er skórinn með einum stórum Zoom Air loftpúða undir öllum fætinum.
- Zoom Air loftpúði undir öllum sólanum veitir dempun í hverju niðurstigi og veitir einnig stuðning við frástigið. Loftpúðinn situr umvafinn
- Skórinn er með Flywire reimakerfi sem heldur utan um fótinn og eykur stöðuleika í skónum. Minnkar einnig líkurnar á því að fóturinn renni til í skónum og maður fái nuddsár eða blöðrur.
- Yfirbyggingin er saumlaus úr léttu og gisnu möskva efni sem gefur skónum léttleika og frábæra öndun í hverju skrefi. Hælkappinn vísar frá hásin til að minnka núning og óþægindi sem gætu skapast.
- Sólinn er úr slitsterku gúmmíefni sem eykur grip í bleytu og hálku. Einnig er sólinn endingargóður og hentar í hlaup á öllu undirlagi.
- Skórinn er 238 grömm en venjulegur Pegasus er 281 grömm (stærð 42.5).
- Offset: 10 mm.
UM VÖRUMERKIÐ
Nike er stærsta íþróttavörumerki í heimi stofnað árið 1972 af þeim Bill Bowerman og Phil Knight í Portland Oregon. Nike sérhæfir sig í íþróttafatnaði og hafa innan sinna raða margar af stærstu íþróttastjörnum heims og má þar helst nefna Michael Jordan sem enn þann dag í dag spilar stórt hlutverk hjá merkinu.