Karfan er tóm.
14 daga greiðslufrestur er í boði fyrir þessa vöru.
Verðskrá Síminn Pay má finna hér.
Miðað við greiðslur á vöxtum.
lántökugjald og færslugjald á mánuði.
Árleg hlutfallstala kostnaðar:
Heildarkostnaður:
Meira um vöruna
Létt Power Stretch flíspeysa úr Polartec Power Stretch Pro með hettu. Mjög hlý en létt og þunn flíspeysa, góð sem miðlag yfir veturinn eða sem jakki á sumrin. Mjúk og notaleg að innan en sterk og endingagóð að utan. Outright er mjúk, teygjanleg og með mjög góða öndunareiginleika. Við teljum að við höfum fundið besta létta flísefnið í heiminum í Polartec Power Stretch Pro Light. Á peysunni eru tveir renndir vasar, tveir rennilásar að framan svo hægt er að opna í báðar áttir, hár kragi og þétt hetta. Outright peysan hentar fullkomnlega fyrir gönguferðir, hjól, hlaup, skíði, fjallgöngur, úti leiki, meðan beðið er eftir strætó eða þegar kaffibollinn er drukkinn úti. Við værum líklega fljótari að segja ykkur hvar hún virkar ekki.
Um vörumerkið
HOUDINI er sænskt útivistarfyrirtæki sem framleiðir gæða fatnað fyrir útivist, hreyfingu og lífsstíl, allt frá ullarnærfötum upp í tæknilegar skeljar og úlpur. Framsækni og nýsköpun eru lykilatriði í hönnun útvistarfatnaðar Houdini. Hjá fyrirtækinu er unnið streitulaust að því að hámarka eiginleika fatnaðarins og bjóða upp á tæknilegar og fallegar flíkur í hæsta gæðaflokki.Sjálfbærni og fjölnotagildi eru lykilatriði í framleiðslunni. Fyrirtækið sker sig úr flóru útvistarmerkja því það framfylgir afar strangri umhverfisstefnu.