
Nánar um vöruna
Við ætlum að gera miðvikudagskvöldið 7. október aðeins skemmtilegra og bjóða upp á Barre æfingu í H verslun á Selfossi ✨
Æfinguna leiðir Kolbrún Þöll, sem hefur kennt Barre og verið eftirsóttur þjálfari hjá World Class síðastliðin tvö ár. Hún leiðir okkur í gegnum skemmtilega æfingu sem reynir á allan líkamann.
Barre sækir innblástur í ballett og blandar saman styrk, jafnvægi og liðleika. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg og æfingin hentar öllum sem langar að hreyfa sig og eiga skemmtilegt kvöld með okkur.
Eftir æfingu verður boðið upp á létta hressingu, goodie bag bíður allra sem mæta og þátttakendur fá 20% afslátt af öllum vörum í H verslun.
Aðeins 35 pláss eru í boði, svo við mælum með að tryggja sér pláss tímanlega 💫
📅 7. október kl. 19:00
📍 H verslun Selfossi
🎟️ Þátttökugjald 2.995 kr.

Svipaðar vörur
- / -
