Varstu að panta á hverslun.is og vilt breyta afhendingarmátanum eða heimilisfangi? Eða vantar aðstoð við pöntunarferlið?
Sendu okkur tölvupóst á vefverslun@hverslun.is og við aðstoðum þig.
Velji viðskiptavinur að fá vöruna senda á skilgreindan afhendingarstað tekur H verslun sér 1-3 virka daga þar til vöru er komið til flutningsaðila sem flytur hana á umbeðinn afhendingarstað. Þú færð tölvupóst um leið og við höfum afgreitt pöntunina þína. Í tölvupóstinum er sendingarnúmer í þar sem þú getur fylgst með stöðu sendingarinnar hjá Póstinum.
H verslun tekur sér allt að 1-3 virka daga til afgreiðslu sóttra pantana. Þú færð staðfestingu í tölvupósti þegar pöntun er tilbúin til afhendingar í verslun. Þegar staðfesting hefur borist er hægt að sækja pöntunina í verslun okkar að Bíldshöfða 9 eða Larsenstræti 2 milli kl. 10-18 virka daga og kl. 11-16 á laugardögum.
Pöntunin fer til flutningsaðila innan eins til þriggja virkra daga frá því að hún berst okkur. Þar við bætist afhendingartími flutningsaðilans sjálfs. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin er lögð af stað.
Heimsending kostar 990 kr. Sending á pósthús kostar 890 kr. og sending í pósthólf 690 kr. Öll verð eru með virðisaukaskatti. Sendingarkostnaður fellur niður þegar verslað er fyrir 20.000 kr. eða meira.
Þú færð fría heimsendingu þegar þú verslar fyrir 20.000 kr. eða meira. Félagar í H klúbbnum fá fría heimsendingu frá 10.000 kr. Upphæðin miðast við heildarandvirði vara í körfunni.
Já, þú velur afhendingu í verslun í greiðsluferlinu og greiðir þá engan sendingarkostnað. Pöntunin er tilbúin innan eins til þriggja virkra daga og við látum þig vita þegar hún bíður þín. Þú getur sótt hana á Bíldshöfða 9 í Reykjavík eða í Larsenstræti 2 á Selfossi.
Báðar verslanir eru opnar frá 10:00 til 18:00 alla virka daga og frá 11:00 til 16:00 á laugardögum. Reykjavík er á Bíldshöfða 9 og Selfoss í Larsenstræti 2.
Hafðu strax samband á vefverslun@hverslun.is eða í síma 540 8080 og við gerum það sem við getum. Þegar pöntun er komin til flutningsaðila náum við ekki að stöðva hana, en þú getur þá skilað vörunni samkvæmt skilaréttinum.
Þú færð staðfestingu í tölvupósti um leið og pöntunin berst okkur og aðra tilkynningu þegar vörurnar eru annað hvort tilbúnar til afhendingu í verslun eða farnar í dreifingu og á leiðinni til þín. Þú getur fylgst með stöðu sendingarinnar í gegnum viðmót dreifingaraðila.
Þú getur greitt með Visa, Mastercard, Netgíró og Síminn Pay.
Kvittun fyrir kaupum eða skilamiði eru skilyrði fyrir vöruskilum.
Viðskiptavinur getur skilað ógallaðri vöru í allt að 14 daga frá þeirri dagsetningu sem vísað er til á kvittun og fengið hana að fullu endurgreidda. Endurgreiðslan miðast við það söluverð sem tilgreint er á kvittun fyrir kaupunum. Eftir 14 daga frá vörukaupum er gefin út inneignarnóta samkvæmt söluverði vörunnar á kassakvittun. Skilafrestur á almennri vöru er að hámarki 30 dagar en 14 dagar á tilboðs-/útsöluvöru.
Við vöruskil gilda eftirfarandi skilyrði:
Að varan sé í fullkomnu lagi
Að varan sé ónotuð
Að varan sé í óuppteknum upprunalegum umbúðum
H verslun metur söluhæfi skilavöru og áskilur sér rétt til að hafna vöruskilum eða bjóða takmarkaða endurgreiðslu ef skilyrðum er áfátt.
Upphæð vöru er ávallt endurgreidd inn á þann greiðslumiðil sem notaður var við kaupin.
Ef kaupandi telur sig hafa fengið afhenta gallaða vöru ber honum að tilkynna það í verslun eða með því að senda tilkynningu þess efnis á netfangið: vefverslun@hverslun.is um leið og galla er vart. Að öðrum kosti getur kaupandi glatað rétti sínum til endurgreiðslu. Sýna þarf kvittun til staðfestingar að vara hafi verið keypt í H verslun. Gölluð vara er endurgreidd eða annað eintak af sömu vöru afhent kaupanda.
Vörum með skilamiða (hvítur á lit) fæst skilað innan þess tíma er tilgreindur er á skilamiðanum, aðeins er gefin út inneignarnóta sem miðast við verð vörunnar við skil nema að kvittun sé framvísað.
Vörum með afsláttarskilamiða (svartur á lit) fæst skilað innan þess tíma er tilgreindur er á skilamiðanum, aðeins er gefin út inneignarnóta sem miðast við kaupverð vörunnar með afslætti.
Ef kaupandi telur sig hafa fengið afhenta gallaða vöru ber honum að tilkynna það í verslun eða með því að senda tilkynningu þess efnis á netfangið: vefverslun@hverslun.is um leið og galla er vart. Að öðrum kosti getur kaupandi glatað rétti sínum til endurgreiðslu. Sýna þarf kvittun til staðfestingar að vara hafi verið keypt í H verslun. Gölluð vara er endurgreidd eða annað eintak af sömu vöru afhent kaupanda.
Þú hefur 14 daga frá því að þú tekur við vörunni til að skila henni. Varan þarf að vera ónotuð, óskemmd og í upprunalegum umbúðum, og kvittun eða skilamiði þarf að fylgja. Sendu okkur línu á vefverslun@hverslun.is áður en þú sendir vöruna til baka svo við getum leiðbeint þér.
Þú hefur 14 daga frá móttöku þegar þú verslar á netinu. Þegar keypt er í verslun hefurðu 14 daga til að fá endurgreitt og allt að 30 daga til að fá inneign. Útsöluvörur og vörur með afsláttarmiða hafa 14 daga skilarétt.
Endurgreiðslan nær til vöruverðsins. Sendingarkostnaðurinn endurgreiðist ekki. Vörur með hvítum skilamiða fá inneign, og vörur með svörtum afsláttarmiða fá inneign sem miðast við afsláttarverðið sem greitt var.
Já. Einfaldast er að skila vörunni og panta rétta stærð í staðinn, því þá tryggirðu þér stærðina á meðan hún er til. Hafðu samband á vefverslun@hverslun.is og við aðstoðum þig.
Útsöluvörur og vörur með afsláttarmiða hafa 14 daga skilarétt og inneignin miðast við það verð sem greitt var, ekki fullt verð. Að öðru leyti gilda sömu skilyrði: varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Hafðu samband á vefverslun@hverslun.is með nafni og kennitölu þess sem verslaði, eða þá skjáskot af greiðslunni. Við ættum þá að geta fundið pöntunina. Kvittun eða skilamiði þarf þó alltaf að fylgja skilum í verslun.
Við fáum sendingu í hverri viku, allar nýjar vörur fara beint inn í vefverslun um leið og þær koma til okkar. Einnig er hægt að fylgjast með nýjungum á Instagram, við mælum með að þú fylgir okkur þar! @hverslun
Við gerum okkar besta til að tryggja að birgðastaðan í vefversluninni sé sem réttust. Í sumum tilfellum getur þó verið að erfitt að koma alveg í veg fyrir að vörur vanti. Til dæmis gæti verið að varan hafi verið keypt í versluninni okkar á sama tíma og þú pantanir hana á netinu. Á miklum álagstímum hefur það líka gerst að tveir eða fleiri einstaklingar hafi keypt sömu vöruna í vefversluninni á nákvæmlega sama tíma og því hafa báðar pantanir farið í gegn þó aðeins eitt stykki væri til.
Á hverri vörusíðu er stærðartafla sem sýnir samanburð milli evrópskra stærða og lengdar í sentímetrum. Mældu fótinn og berðu saman við töfluna. Ef þú ert á milli stærða mælum við með þeirri stærri, sérstaklega í hlaupaskóm þar sem fóturinn þenst út við álag. Þú getur líka komið við í Bíldshöfða 9 eða Larsenstræti 2 og fengið mátun.
Láttu barnið standa á blaði með hælinn upp við vegg og merktu við lengstu tána. Mældu frá blaðbrúninni að merkinu í sentímetrum og mældu báða fætur því þeir eru sjaldan alveg eins. Notaðu stærri mælinguna og bættu við hálfum til einum sentímetra, því börnin vaxa oft hratt. Berðu töluna svo saman við stærðartöfluna á vörusíðunni.
Mældu í lok dags, því fóturinn þrútnar yfir daginn, og í sömu sokkum og þú ætlar að nota með skónum. Límdu blað á hart gólf, stattu á því með örlítið beygt hné og fáðu einhvern til að teikna útlínur fótarins með blýantinum lóðréttum. Merktu við stóru tána og ysta punkt hælsins og mældu á milli í sentímetrum. Mældu báða fætur, því þeir eru sjaldan eins, og notaðu stærri mælinguna. Berðu svo töluna saman við stærðartöfluna á vörusíðunni, því Nike-stærðir byggja á lengd fótarins.
Pegasus leggur áherslu á að veita mikla dempun og þeyta hlauparanum áfram með því að skila orku til baka í hverju skrefi.
Vomero er mýksti hlaupaskórinn frá Nike og veitir hámarks dempun og þægindi.
Structure er fyrir þau sem þurfa mesta stöðugleikann. Skórinn stýrir fætinum rétt niður og veitir framúrskarandi stuðning.
Valið ræðst af því hvers konar hlaup þú ert að fara í, hvað þú hleypur mikið og á hvaða hraða, frekar en af því hvort þú ert byrjandi eða reyndur. Starfsfólk okkar eru sérfræðingar í vali á hlaupaskóm og við tökum vel á móti öllum hlaupurum.
Það á að vera um þumalbreidd milli stóru tánnar og skóendans. Tærnar mega snerta endann ef þú vilt þéttari tilfinningu, en þær eiga aldrei að krullast upp.
Athugaðu líka að fóturinn þrútnar og tærnar þurfa pláss þegar þú hleypur, svo hlaupaskór eru gjarnan hálfu til heilu númeri stærri en hversdagsskórnir þínir.
Allt er þetta þó einstaklingsbundið og við hvetjum fólk alltaf til að kíkja í heimsókn til okkar og fá aðstoð og ráðleggingar sérfræðinga við valið.
Byrjandi þarf ekki aðra skó en reyndur hlaupari. Það sem ræður valinu er hvar þú hleypur, hversu langt og hversu oft. Fyrir hlaup á vegum og hlaupabrettum þarftu götuskó með góðri dempun. Fyrir stíga og utanvega þarftu utanvegaskó með meira gripi. Ef þú ert óviss eða vilt bara skoða það allra nýjasta hvetjum við þig til að kíkja til okkar og fá aðstoð við valið.
Almenna viðmiðið er um 500 til 800 kílómetrar. Í kílómetrum talið þýðir það að sá sem hleypur um 16 km á viku endist á skónum í sjö til tólf mánuði, sá sem æfir fyrir 5 eða 10 kílómetra í fimm til átta mánuði, sá sem æfir fyrir hálft maraþon í fjóra til sex mánuði og sá sem æfir fyrir maraþon í tvo til þrjá mánuði.
Fjögur merki segja þér að tími sé kominn til að skipta: dempunin hefur minnkað og skrefið orðið þyngra, þú finnur fyrir nýjum eymslum í fótum, hnjám eða mjöðmum, sólinn er slitinn ójafnt eða skórinn hallar til hliðar, og yfirefnið er farið að rifna.
Hlaupasokkar frá Nike eru úr DRI-FIT efni sem dregur svita og raka frá líkamanum og hleypir honum út. (Þetta er ólíkt hefðbundnum bómullarsokkum sem draga í sig raka og haldast blautir og auka líkur á nuddsárum, blöðrum og öðrum óþægindum.)
Hlaupasokkar eru saumlausir og því mun minni hætta á nuddsárum og ertingu sérstaklega á tásvæði
Sokkarnir eru mótaðir eftir fætinum (anatomical fit) og haldast á réttum stað og því minni hætta á hælsæri og nuddi
Sokkarnir eru þykkari undir hæl og tábergi sem veitir aukna mýkt og dempun í hverju skrefi
Hlaupasokkar eru líka hannaðir til að þola mikla notkun, nudd, núning, álag og eiga því að vera slitsterkari en venjulegir bómullarsokkar
ZoomX er léttasta froðan og skilar mestri orku til baka, og er notuð í keppnis- og hraðaskóm. React er stöðugri og endingarbetri, og hentar daglegum hlaupum og lengri vegalengdum. Air Zoom eru þrýstiloftpúðar sem gefa snögg viðbrögð í fráspyrnu og finnast bæði í hlaupa- og æfingaskóm.
Platan stífir skóinn og dregur úr orkutapi í hverju skrefi, sem nýtist best á meiri hraða. Hún hentar því keppni og hraðaæfingum frekar en rólegum æfingahlaupum.
Fyrir flesta er svarið nei. Þessir skór eru sérhæfðir, endast færri kílómetra en hefðbundnir æfingaskór og henta illa sem eini skórinn í skápnum. Betra er að eiga góðan æfingaskó og bæta keppnisskó við ef markmiðin kalla á það.
Nike skiptir fótboltaskónum eftir leikstíl frekar en stöðu á vellinum. Mercurial er fyrir hraðann, léttur og straumlínulagaður með miklu gripi. Tiempo er fyrir þá sem treysta á snertinguna og gefur næmari tilfinningu fyrir boltanum. Phantom er fyrir nákvæmnina, snerpuna og boltatæknina.
Við fáum oft spurninguna "Hvað þýða skammstafanirnar á fótboltaskónum frá Nike?"
Merkingin á skónum segir til um fyrir hvaða undirlag sólinn er hannaður:
AG (Artificial grass): Gervigras, með tökkum
FG (Firmground): Náttúrulegt þurrt gras
SG (Softground): Náttúrulegt blautt gras, með skrúfuðum málmtökkum
MG (Multiground): Fjölnota, fyrir náttúrulegt- og gervigras
TF (Turf): Gervigras, með mörgum minni gervigrastökkum
IC (Incourt): Innanhúss, flatur sóli fyrir slétt undirlag (oftast parket eða dúkur)
Algengast er að börn séu í MG og TF, þar sem þau eru léttari og æfa og keppa nánast eingöngu á gervigrasi.
Hjá fullorðnum er AG og FG algengast (gervigras eða þurrt náttúrulegt gras), en SG kemur sér oft vel fyrir raka eða blauta grasvelli, t.d. á íslenskum rigningardögum.
Á nýrri gervigrasvöllum með mýkra gras er það í lagi fyrir flest, en á eldri og harðari gervigrasvöllum mæla íslenskir sérfræðingar með AG (minni takkar) eða TF (grófur sóli), bæði til að lágmarka skemmdir á vellinum en ekki síður til að draga úr álagi á hné og ökkla.
Endurance er klórþolið efni Speedo, þróað til að halda lögun og lit mun lengur en hefðbundið sundefni. Það skiptir máli fyrir alla sem synda reglulega, því klór brýtur niður venjulegt sundefni og teygjan gefur sig.
Þéttar en þig grunar. Sundefni gefur eftir í vatni, svo bolur sem er þægilegur á þurru landi verður of laus í lauginni. Æfingabolir mega sitja aðeins rýmra en keppnisbolir.
Skolaðu flíkina í köldu vatni strax eftir hverja sundferð og láttu hana þorna á snúru, ekki í þurrkara. Skildu hana aldrei eftir samanvöðlaða og blauta í tösku. Forðastu líka að sitja á heitum flísum eða í heitum pottum í keppnisfatnaði, því hiti vinnur á teygjunni.
Þrýstu glerjunum að augnsvæðinu án þess að setja ólina yfir höfuðið. Ef þau haldast á í nokkrar sekúndur er lögunin rétt fyrir þitt andlit. Ólin á að halda þeim á sínum stað, ekki þrýsta þeim föstum.
Innra byrðið er með þokuvarnarhúð sem slitnar við snertingu. Ekki nudda innan úr glerjunum, skolaðu þau í köldu vatni eftir notkun og geymdu þau þurr í hulstri.
FIT er samheiti Nike yfir efnistækni sem stýrir hita og raka. Fjórar útgáfur eru í boði: Aero-FIT heldur þér svölum, Dri-FIT heldur þér þurrum, Therma-FIT heldur þér heitum og Storm-FIT ver þig fyrir vindi og vætu. Merkingin á flíkinni segir til um fyrir hvaða aðstæður hún er hönnuð.
Dri-FIT flytur svita frá húðinni svo hann gufi hraðar upp og þú haldist þurr. Aero-FIT gengur skrefi lengra og skapar loftflæði milli húðar og flíkur, sem kælir líkamann með hámarks öndun. Dri-FIT hentar flestum æfingum, Aero-FIT er fyrir mikla ákefð og hlýrri aðstæður.
Byggðu upp lög. Innst: Dri-FIT eða Aero-FIT til að halda húðinni þurri, því blautt innsta lag er helsta ástæða þess að fólki verður kalt. Yst: Storm-FIT gegn vindi og rigningu. Therma-FIT fer á milli þegar hitastigið fer niður fyrir frostmark.
Storm-FIT stendur gegn vindi og vatni og heldur þér þægilegum í krefjandi veðri, en útfærslan er mismunandi eftir flíkum. Sumar eru vindheldar með vatnsfráhrindandi meðferð, aðrar eru vatnsheldar. Athugaðu vörulýsinguna á hverri flík fyrir sig.
Já. Therma-FIT nýtir þann hita sem líkaminn framleiðir sjálfur í stað þess að reiða sig á þykkt efni. Þess vegna eru margar Therma-FIT flíkur léttar og fyrirferðarlitlar en halda samt hita þegar kalt er.
Tech Fleece er léttara og þéttara efni en hefðbundið flís. Það er byggt upp í þremur lögum þar sem froðukennt millilag fangar hita, sem gefur hlýju án þess að flíkin verði fyrirferðarmikil. Yfirborðið er slétt, ekki loðið eins og á venjulegu flísi.
Tech Fleece er fyrst og fremst hversdagsflík. Hún heldur hita en er hvorki vind- né vatnsheld, svo í roki og rigningu þarf skel yfir. Fyrir æfingar úti í kulda hentar Therma-FIT betur.
Tech Fleece efnið er sérhannað fjöllaga efni og sniðið er unnið með færri saumum og faldlausum köntum. Þetta er dýrari framleiðsla en hefðbundið flís, svo verðið er oft hærra, en efnið, hönnunin og framleiðslutæknin skila sér í vandaðri flík sem heldur lagi sínu og endist vel.
Nike Pro er æfingalína frá Nike, hönnuð til að liggja þétt að líkamanum og tvinna saman stuðning, hreyfanleika og öndun. Flíkurnar eru teygjanlegar, styðja við vöðva og eru gerðar til að vera notaðar einar sér eða sem innsta lag.
Nike Pro hentar til dæmis vel í lyftingum, boltaíþróttum og æfingum með mikilli hreyfingu, þar sem flík sem liggur að líkamanum truflar minna. Pro-línan virkar líka vel sem innsta lag undir öðrum fatnaði í kulda, því fötin liggja að húðinni og flytja svita frá.
Í Pro-línunni velur þú þína vanalegu stærð. Nike Pro á að liggja þétt, það er hluti af hönnuninni. Ef þú vilt lausara snið hentar Dri-FIT línan betur.
AeroSwift er keppnislína Nike, þróuð með afrekshlaupurum. Efnið er eins létt og hægt er, sniðið liggur þétt að til að draga úr loftmótstöðu, og loft flæðir vel um efnið.
Nike AeroSwift er fyrir þau sem eru að keppa eða hlaupa á hraða þar sem hvert smáatriði skiptir máli. Fyrir daglegar æfingar er Dri-FIT línan hagkvæmari kostur og endingarbetri í þvotti.
Æskilegt er að þvo Nike Tech Fleece fatnað á röngunni og ekki á hærra hitastigi en 30°C.
Allur skóbúnaður fellur úr ábyrgð ef hann er þveginn í þvottavél.
Notkun á mýkingarefni getur stíflað öndunareiginleika íþróttafatnaðar.
Þvoðu við 30 gráður með mildu þvottaefni og snúðu flíkinni á rönguna. Forðastu háan hita í þvotti og þurrkara, því hiti skemmir teygjuþræðina.
Nei. Mýkingarefni skilur eftir sig húð á gerviþráðunum sem lokar á rakaflutninginn, þannig að flíkin hættir að virka eins og hún á að gera. Sama gildir um þvottaefni með innbyggðu mýkingarefni.
Við mælum með þvottaefninu frá Sonett, því það er milt en öflugt, laust við öll kemísk efni og brotnar 100% niður í náttúrunni.
Lyktin kemur frá bakteríum sem þrífast í svita sem situr eftir í efnisþráðunum. Hengdu flíkina strax til þerris í stað þess að skilja hana eftir samanbrotna í tösku, og þvoðu sem fyrst. Þvottaefni ætlað íþróttafatnaði eða að leggja föt í bleyti í vatni með ediki fyrir þvott getur unnið á þrálátri lykt.
Best er að leyfa lofti að leika um íþróttaskó sem fyrst eftir æfingu.
Sótthreinsispreyið frá Sonett hefur reynst vel í baráttunni við táfýlu úr skóm og myglulykt úr þvottavél. Allar vörur frá Sonett eru án kemískra efna og brotna 100% niður í náttúrunni.
Handþvottur er öruggastur: volgt vatn, mild sápa og mjúkur bursti. Skór eiga hvorki heima í þvottavél né þurrkara, og þeir eiga ekki að þorna á ofni. Taktu innleggið og reimarnar úr og þurrkaðu við stofuhita.
