FIT er samheiti Nike yfir efnistækni sem stýrir hita og raka. Fjórar útgáfur eru í boði: Aero-FIT heldur þér svölum, Dri-FIT heldur þér þurrum, Therma-FIT heldur þér heitum og Storm-FIT ver þig fyrir vindi og vætu. Merkingin á flíkinni segir til um fyrir hvaða aðstæður hún er hönnuð.
Dri-FIT flytur svita frá húðinni svo hann gufi hraðar upp og þú haldist þurr. Aero-FIT gengur skrefi lengra og skapar loftflæði milli húðar og flíkur, sem kælir líkamann með hámarks öndun. Dri-FIT hentar flestum æfingum, Aero-FIT er fyrir mikla ákefð og hlýrri aðstæður.
Byggðu upp lög. Innst: Dri-FIT eða Aero-FIT til að halda húðinni þurri, því blautt innsta lag er helsta ástæða þess að fólki verður kalt. Yst: Storm-FIT gegn vindi og rigningu. Therma-FIT fer á milli þegar hitastigið fer niður fyrir frostmark.
Storm-FIT stendur gegn vindi og vatni og heldur þér þægilegum í krefjandi veðri, en útfærslan er mismunandi eftir flíkum. Sumar eru vindheldar með vatnsfráhrindandi meðferð, aðrar eru vatnsheldar. Athugaðu vörulýsinguna á hverri flík fyrir sig.
Já. Therma-FIT nýtir þann hita sem líkaminn framleiðir sjálfur í stað þess að reiða sig á þykkt efni. Þess vegna eru margar Therma-FIT flíkur léttar og fyrirferðarlitlar en halda samt hita þegar kalt er.
Tech Fleece er léttara og þéttara efni en hefðbundið flís. Það er byggt upp í þremur lögum þar sem froðukennt millilag fangar hita, sem gefur hlýju án þess að flíkin verði fyrirferðarmikil. Yfirborðið er slétt, ekki loðið eins og á venjulegu flísi.
Tech Fleece er fyrst og fremst hversdagsflík. Hún heldur hita en er hvorki vind- né vatnsheld, svo í roki og rigningu þarf skel yfir. Fyrir æfingar úti í kulda hentar Therma-FIT betur.
Tech Fleece efnið er sérhannað fjöllaga efni og sniðið er unnið með færri saumum og faldlausum köntum. Þetta er dýrari framleiðsla en hefðbundið flís, svo verðið er oft hærra, en efnið, hönnunin og framleiðslutæknin skila sér í vandaðri flík sem heldur lagi sínu og endist vel.
Nike Pro er æfingalína frá Nike, hönnuð til að liggja þétt að líkamanum og tvinna saman stuðning, hreyfanleika og öndun. Flíkurnar eru teygjanlegar, styðja við vöðva og eru gerðar til að vera notaðar einar sér eða sem innsta lag.
Nike Pro hentar til dæmis vel í lyftingum, boltaíþróttum og æfingum með mikilli hreyfingu, þar sem flík sem liggur að líkamanum truflar minna. Pro-línan virkar líka vel sem innsta lag undir öðrum fatnaði í kulda, því fötin liggja að húðinni og flytja svita frá.
Í Pro-línunni velur þú þína vanalegu stærð. Nike Pro á að liggja þétt, það er hluti af hönnuninni. Ef þú vilt lausara snið hentar Dri-FIT línan betur.
AeroSwift er keppnislína Nike, þróuð með afrekshlaupurum. Efnið er eins létt og hægt er, sniðið liggur þétt að til að draga úr loftmótstöðu, og loft flæðir vel um efnið.
Nike AeroSwift er fyrir þau sem eru að keppa eða hlaupa á hraða þar sem hvert smáatriði skiptir máli. Fyrir daglegar æfingar er Dri-FIT línan hagkvæmari kostur og endingarbetri í þvotti.
