Við fáum sendingu í hverri viku, allar nýjar vörur fara beint inn í vefverslun um leið og þær koma til okkar. Einnig er hægt að fylgjast með nýjungum á Instagram, við mælum með að þú fylgir okkur þar! @hverslun
Við gerum okkar besta til að tryggja að birgðastaðan í vefversluninni sé sem réttust. Í sumum tilfellum getur þó verið að erfitt að koma alveg í veg fyrir að vörur vanti. Til dæmis gæti verið að varan hafi verið keypt í versluninni okkar á sama tíma og þú pantanir hana á netinu. Á miklum álagstímum hefur það líka gerst að tveir eða fleiri einstaklingar hafi keypt sömu vöruna í vefversluninni á nákvæmlega sama tíma og því hafa báðar pantanir farið í gegn þó aðeins eitt stykki væri til.
Á hverri vörusíðu er stærðartafla sem sýnir samanburð milli evrópskra stærða og lengdar í sentímetrum. Mældu fótinn og berðu saman við töfluna. Ef þú ert á milli stærða mælum við með þeirri stærri, sérstaklega í hlaupaskóm þar sem fóturinn þenst út við álag. Þú getur líka komið við í Bíldshöfða 9 eða Larsenstræti 2 og fengið mátun.
Láttu barnið standa á blaði með hælinn upp við vegg og merktu við lengstu tána. Mældu frá blaðbrúninni að merkinu í sentímetrum og mældu báða fætur því þeir eru sjaldan alveg eins. Notaðu stærri mælinguna og bættu við hálfum til einum sentímetra, því börnin vaxa oft hratt. Berðu töluna svo saman við stærðartöfluna á vörusíðunni.
Mældu í lok dags, því fóturinn þrútnar yfir daginn, og í sömu sokkum og þú ætlar að nota með skónum. Límdu blað á hart gólf, stattu á því með örlítið beygt hné og fáðu einhvern til að teikna útlínur fótarins með blýantinum lóðréttum. Merktu við stóru tána og ysta punkt hælsins og mældu á milli í sentímetrum. Mældu báða fætur, því þeir eru sjaldan eins, og notaðu stærri mælinguna. Berðu svo töluna saman við stærðartöfluna á vörusíðunni, því Nike-stærðir byggja á lengd fótarins.
