Fara á efnissvæði

Viðskiptavinur sem kemur í verslun og kaupir vöru fær vöruna afhenta þar. Vara sem keypt er í vefverslun H verslunar getur kaupandi ýmist valið að sækja í H verslun, Bíldshöfða 9, 110 Reykjavík, H verslun Larsenstræti 2, 800 Selfoss eða valið að fá vöruna senda á skilgreindan afhendingarstað. Opnunartími H verslunar er milli kl. 11 - 18 alla virka daga og kl. 11-16 á Laugardögum.

Sóttar pantanir:
H verslun tekur sér 1-3 virka daga til afgreiðslu sóttra pantana. Kaupanda berst staðfesting í tölvupósti þegar pöntun er tilbúin til afhendingar í verslun. Viðskiptavinur, sem pantað hefur í gegnum vefverslun H verslunar en velur að sækja pöntun í verslun, skal framvísa staðfestingu á vörukaupum, s.s. rafrænum reikningi, þegar hann sækir pöntunina.

Sendar pantanir:
Velji viðskiptavinur að fá vöruna senda á skilgreindan afhendingarstað tekur H verslun sér 1-3 virka daga þar til vöru er komið til flutningsaðila sem flytur hana á umbeðinn afhendingarstað. Gjald fyrir heimsendingu er 990 kr. m/vsk , 890 kr. m/vsk. á pósthús, 690 kr. m/vsk í póstbox en fellur niður ef verslað er fyrir kr. 20.000,- eða meira. Fyrir viðskiptavini sem skráðir eru í H klúbbinn er miðað 0 kr 

Pósturinn og Dropp eru dreifingaraðilar H verslunar og sér um sendingu á keyptum vörum til viðskiptavina. Um afhendingu vörunnar gilda því afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Póstsins og Dropp. Eingöngu er hægt að fá vörur H verslunar sendar innan Íslands. H verslun áskilur sér rétt til að breyta skilmálum er varða verð, afhendingar- og sendingarmáta, án fyrirvara.