Fara á efnissvæði

09.09.2026

Svona lengir þú líftíma sundfata

Það kannast allir við svekkelsið sem fylgir því þegar að drauma sundbolurinn er úr sér genginn nú eða drauma skýlan. Hinsvegar er ýmislegt sem hægt er að gera til þess að lengja líftíma sundfata.
Day3 Speedo STILLS Stillife 1171

Það kannast allir við svekkelsið sem fylgir því þegar draumasundbolurinn er úr sér genginn, nú eða drauma skýlan. Það er þó ýmislegt hægt er að gera til þess að lengja líftíma sundfata. Það er vitað mál að klórinn fer illa með öll sundföt og því mjög mikilvægt að skola þau alltaf upp úr köldu vatni strax eftir notkun. Alls ekki vinda sundfötin, það eyðir teygjunni í efninu hratt og örugglega. Kreistið mesta vatnið varlega úr þeim með höndunum, leggið sundfötin því næst flöt og forðist það að láta þau þorna í sólarljósi. Gætið þess að leggja þau ekki á grófan flöt en þannig geta þau hrökrað. Haldið að lokum sundfötunum frá hita, samanber ofni og straujárni.