Fara á efnissvæði

09.10.2024

Maca rótin sem er að slá í gegn

Maca (Lepidium meyenii) er lækningajurt sem hefur lengi verið notuð sem fæða og lyf í Perú þar sem hún vex upp til fjalla. Maca-rótin tilheyrir krossblómaætt og er skyld brokkolíi, blómkáli og hvítkáli. Til eru mismunandi tegundir af maca-rótinni en ræturnar geta verið rauðar, svartar, fjólubláar eða gular Efnainnihald og virkni geta verið breytileg milli tegunda. Maca er næringarrík rót og inniheldur m.a. trefjar, sterkju, nauðsynlegar amínósýrur, járn, joð, kalk, önnur steinefni og vítamín ásamt fjölda virkra plöntuefna. Maca-rótin hefur hlotið mikla athygli undanfarið þó að rannsóknir á virkni hennar séu á byrjunarstigi.
Maca DSC3505

Heilsa kvenna

Rannsóknir benda til þess að maca-rótin geti aukið kynhvöt, dregið úr einkennum breytingaskeiðs, s.s. hitakófum og svefnvanda, stuðlað að bættu skapi og aukinni orku. Ein rannsókn sýndi að konur sem tóku tvær töflur sem innihéldu maca tvisvar á dag eftir tíðahvörf upplifðu minni einkenni, eins og hitakóf og nætursvita. Maca inniheldur engin jurtaestrógen, eða undanfara þeirra, og er virkni maca rakin til plöntusteróla og alkalóíða, efnasambönd sem eru þekkt fyrir að örva hormónastarfsemi í gegnum HPA-ásinn (undirstúku-heiladingul-nýrnahettuásinn). Maca virtist sýna sértaka virkni sem einkennir aðlögunarjurtir (e. adaptogens) með því að hafa hormónastillandi áhrif í gegnum HPA-ásinn og gæti þannig verið valkostur án hormóna fyrir konur á breytingaskeiði og í tíðahvörfum. 

Heilsa karla

Sögulega hefur notkun maca verið tengd jákvæðum áhrifum á æxlunarheilbrigði karlmanna, þ.e. að auka kynhvöt, frjósemi og sæðisframleiðslu, og rótin hefur víða verið notuð til að auka frjósemi. Í yfirlitsgrein frá 2016 var sýnt fram á að maca-rót virðist geta aukið gæði sæðis hjá bæði frjósömum körlum og þeim sem glíma við ófrjósemi. Einnig eru vísbendingar um að maca geti aukið kynhvöt hjá körlum.

Maca og aukin orka

Algengt er að fólk noti maca til þess að vinna bug á þreytu og upplifa aukna orku. Maca virðist m.a. hafa áhrif á hvatberavirkni og auka ATP-orkuefni sem skýrir orkuáhrif maca. Lítil rannsókn frá 2016 með 175 þátttakendum bendir til að það séu tengsl milli notkunar á maca og aukinnar orku en í rannsókninni sögðust þau sem tóku 3 g af maca í 12 vikur upplifa meiri orku en þau sem neyttu ekki maca. 

Maca hefur margvíslega mögulega heilsufarslega ávinninga, sérstaklega fyrir æxlunar- og kynheilbrigði. Hins vegar er frekari rannsókna þörf til þess að ákvarða virkni og ávinning af notkun maca enn frekar þar sem margar rannsóknir notuðu lítil úrtök eða dýralíkön. Flestir þola maca vel og flestir geta tekið efnið inn án þess að fá aukaverkanir. Vegna mögulegra orkuaukandi áhrifa er best að neyta maca fyrri part dags.  

Heimildir

  1. Chemical composition and health effects of maca (Lepidium meyenii) – ScienceDirect

  2. Use of Gelatinized Maca (Lepidium Peruvianum) in Early Postmenopausal Women – PMC (nih.gov

  3. Hormone-Balancing Effect of Pre-Gelatinized Organic Maca (Lepidium peruvianum Chacon): (III) Clinical responses of early-postmenopausal women to Maca in double blind, randomized, Placebo-controlled, crossover configuration, outpatient study – PMC (nih.gov)

  4. The use of maca (Lepidium meyenii) to improve semen quality: A systematic review – PubMed (nih.gov)  

  5. Exploring the chemical and pharmacological variability of Lepidium meyenii: a comprehensive review of the effects of maca – PMC (nih.gov)

  6. Acceptability, Safety, and Efficacy of Oral Administration of Extracts of Black or Red Maca (Lepidium meyenii) in Adult Human Subjects: A Randomized, Double-Blind, Placebo-Controlled Study – PubMed (nih.gov)