Fara á efnissvæði

09.02.2025

Stolt af íslenskri framleiðslu MUNA vítamína

MUNA er umhugað um heilsuna og leggur sitt af mörkum þegar kemur að því að lifa heilbrigðu lífi. Nýrri vítamín línu MUNA var því fagnað með miklu stolti fyrr á árinu en um er að ræða línu fyrir alla fjölskylduna.MUNA vítamínin eru framleidd á Íslandi eftir ströngustu gæðakröfum.
447804877 875710397640896 4683606939058084191 N 1152X1536

Grenivík er þekkt fyrir náttúrufegurð sína, hreint loft og óspillta náttúru en einmitt þar er Pharmarctica, framleiðandi MUNA vítamínanna staðsett, í litlu sveitarfélaga á Norðurlandi eystra. Óhætt er að segja að staðsetningin veiti fyrirtækinu einstaka aðstöðu til að framleiða hreinar og náttúrulegar vörur.

447425240 875710497640886 4719303930818148023 N 1 1152X1536

Ör vöxtur í íslenskri framleiðslu

Pharmarctica hóf starfsemi sína árið 2003 á framleiðslu á forskriftarlyfjum lækna og snyrtivörum og hefur verið í örum vexti síðan. Í dag er Parmarctica leiðandi  fjölbreytt úrval húðvara og heilsuvara. Vörurnar þeirra eru oft unnar úr náttúrulegum hráefnum sem eru rík af næringarefnum og hafa jákvæð áhrif á húðina og heilsuna. 

Pharmarctica leggur mikla áherslu á gæði og öryggi vara sinna. Allar vörur eru framleiddar í samræmi við ströng alþjóðleg gæðastjórnunarstaðla og eru háðar reglulegum gæðaskoðunum. Fyrirtækið notar eingöngu hágæða hráefni og framleiðsluferli sem tryggja að vörurnar séu öruggar og áhrifaríkar.

447436746 875710520974217 4956335524394881157 N 1152X1536

Sigurbjörn Þór Jakobsson framkvæmdarstjóri Pharmarctica segir starfsemina mjög mikilvæga fyrir sveitafélagið þar sem starfssviðið sé mjög breytt en í fyrirtækinu starfa sautján manns sem flestir búa í nærumhverfi Grenivíkur. „Það er sömuleiðis mikilvægt fyrir starfsemi okkar að fá verkefni eins og að framleiða MUNA vítamín vörulínuna þar sem öll okkar þekking og tækni fær að njóta sín.“

447281507 875710537640882 8407210265134101751 N 1152X1536

Pharmarctica er framarlega í rannsóknum og þróun nýrra vara. Fyrirtækið vinnur oft með vísindamönnum og sérfræðingum til að þróa nýjar og endurbætta vörur sem mæta þörfum viðskiptavina. Þetta tryggir að vörurnar séu ávallt í takt við nýjustu vísindalegu þekkingu og þróun á sviði húðvöru og heilsuvara eins og MUNA vítamína.