Karfan er tóm.
14 daga greiðslufrestur er í boði fyrir þessa vöru.
Verðskrá Síminn Pay má finna hér.
Miðað við greiðslur á vöxtum.
lántökugjald og færslugjald á mánuði.
Árleg hlutfallstala kostnaðar:
Heildarkostnaður:
Meira um vöruna
Þægindi og stöðugleiki eru einkunnar orð React Metcon Nike React Metcon skórinn er með stöðuleika og grip sem er grundvöllur fyrir allar alhliðaæfingar og bætir við mýktinni og dempuninni úr React tækninni. React tæknin er dempunarefni sem gefur hámarks dempun í hverju skrefi ásamt því að flytja orkuna sem myndast við niðurstigið og nýta hana í frástigið. React efnið er undir öllum fætinum og veitir jafna og mjúka tilfinningu. Yfirbyggingin er úr styrktu Flyknit efni sem mótast fullkomlega að fætinum um leið og Flyknit efnið gefur góða öndun í hverju skrefi og veitir léttleika. Sérstakt Quick-Pull reimakerfi gerir notanda auðvelt fyrir að reima skóna og herða þá vel að fætinum. Sólinn teygir sig upp með fram hliðum á skónum til að veita meiri stöðuleika og gefa betra grip í kaðlaklifrinu. Heilt yfir er React Metcon skórinn fullkominn alhliðaæfingaskó fyrir þá sem vilja stöðuleika, grip og mýkt.
Um vörumerkið
Nike er amerískt íþróttavörumerki sem var stofnað árið 1964 af frjálsíþróttamanninum Phil Knigt og þjálfara hans Bill Bowerman í Beaverton Oregon. Í upphafi hét fyrirtækið Blue Ribbon Sports eða allt til ársins 1971 þegar nafninu var svo breytt í NIKE eins og við þekkjum það í dag. Núna er NIKE stærsta íþróttavörumerki í heiminum.