Fara í efni
Gleymt lykilorð Nýskráning
Þú gerist meðlimur í H klúbbnum við fyrstu kaup

Karfan þín

Karfan er tóm.

Vnr. 0ah7858103

Nike Vomero 14 hlaupaskór

30.990 kr.
Bíldshöfði: Vara ekki til á lager
Selfoss: Vara ekki til á lager

Meira um vöruna

Nýjasta útgáfan af hinum goðsagna kennda Air Zoom Vomero.
Þessi útgáfa skítur þeim gamla ref fyrir rass með miklum tækninýjungum.
Zoom Air loftpúði undir öllum sóla veitir dempun í niðurstigi og eins mýkt og stuðning við frástigið.
REACT dempunar efnið er einnig í sóla sem vinnur einstaklega vel með loftpúðadempuninni og gefur notandanum frábæra tilfinningu.
Ný hönnun í yfirbyggingu gerir skóinn sterkari og endingarbetri og með meiri stuðning við fótinn.
Tungan er saumuð saman að hluta til þess að hún renni ekki til hliðar og erti eða pirri hlauparann.
Hælkappinn er með sérstökum púðum sem lagast að hælnum og veita því stuðning við fótinn sem kemur í veg fyrir hælsæri.
Skórinn er einnig með Flywire reimakerfi sem heldur utan um fótinn og eykur stöðuleika í skónum. Minnkar líkurnar á því að fóturinn renni til innan í skónum og fái nuddsár og blöðrur.
Sólinn er svo útbúinn slitsterkri gúmmíblöndu sem gerir skóinn endingarbetri en forveri sinn. Einnig veitir gúmmíið meira grip í bleytu og hálku.
Offset: 10mm

Um vörumerkið

Nike er amerískt íþróttavörumerki sem var stofnað árið 1964 af frjálsíþróttamanninum Phil Knigt og þjálfara hans Bill Bowerman í Beaverton Oregon. Í upphafi hét fyrirtækið Blue Ribbon Sports eða allt til ársins 1971 þegar nafninu var svo breytt í NIKE eins og við þekkjum það í dag. Núna er NIKE stærsta íþróttavörumerki í heiminum.

Sjá fleiri vörur: Skór kvenna: Hlaupaskór