Karfan er tóm.
14 daga greiðslufrestur er í boði fyrir þessa vöru.
Verðskrá Síminn Pay má finna hér.
Miðað við greiðslur á vöxtum.
lántökugjald og færslugjald á mánuði.
Árleg hlutfallstala kostnaðar:
Heildarkostnaður:
Meira um vöruna
Heltekin(n) af hraða? Það eru stærstu stjörnur leiksins líka. Þess vegna hönnuðum við þennan Elite-takkaskó með endurbættri 3/4 lengdar Air Zoom einingu. Hún veitir þér – og hraðskreiðustu leikmönnum íþróttarinnar – það knýjandi undirlag sem þarf til að brjótast í gegnum varnarlínuna. Niðurstaðan er næmasti Mercurial sem við höfum nokkru sinni gert, því þú gerir kröfur um afburði – bæði af sjálfum þér og skónum þínum. Framúrskarandi snerting Nike Gripknit er gripmikið efni sem veitir betri snertingu við boltann. Það þekur stærra yfirborð og gefur þér meira svigrúm til boltastjórnar við hraðan sprett eða þegar þú klárar sókn með skoti á mark. Efnið mótast að lögun fótarins og veitir jafnt grip í blautum sem þurrum aðstæðum, fyrir mótað snið sem minnir á hlaupaskó með nöglum. Hratt grip Bylgjulaga takkamynstur samanstendur af röð stallaðra takka sem virkja stærra snertiflöt Air Zoom einingarinnar og veita jafnframt rétt magn grips. Stærsti takkinn er í sömu hæð og hefðbundnir miðjutakkar, þannig að grip skerðist ekki. Mynstrið er parað við þróaða takka sem hjálpa þér að stoppa hratt og skipta skyndilega um stefnu. Nákvæmt snið Full Flyknit yfirbygging er hönnuð með hraða í huga. AtomKnit, einstaklega létt og sterkt Flyknit efni á hliðunum, dregur úr þyngd og veitir stuðning. Gripknit, AtomKnit og Flyknit sameinast og mynda
Um vörumerkið
Nike er amerískt íþróttavörumerki sem var stofnað árið 1964 af frjálsíþróttamanninum Phil Knigt og þjálfara hans Bill Bowerman í Beaverton Oregon. Í upphafi hét fyrirtækið Blue Ribbon Sports eða allt til ársins 1971 þegar nafninu var svo breytt í NIKE eins og við þekkjum það í dag. Núna er NIKE stærsta íþróttavörumerki í heiminum.