Karfan er tóm.
14 daga greiðslufrestur er í boði fyrir þessa vöru.
Verðskrá Síminn Pay má finna hér.
Miðað við greiðslur á vöxtum.
lántökugjald og færslugjald á mánuði.
Árleg hlutfallstala kostnaðar:
Heildarkostnaður:
Meira um vöruna
Fínstilltur fyrir maraþonhraða hjálpar Alphafly 3 þér að fara lengra en þú hélst mögulegt. Þrjár öflugar tæknilausnir knýja hlaupið áfram: tvær Air Zoom einingar gefa kraft í hvert skref, carbon plata í fullri lengd hjálpar þér að ýta þér áfram af auðveldum hætti og ZoomX froða í millisóla frá hæl að tám heldur þér ferskum frá ræsingu og alla leið í 42,2 km. Tími til að skilja gömlu persónulegu metin eftir í rykinu. Tvær Air Zoom einingar í framfætinum vinna með ZoomX froðu að því að geyma og skila orku aftur til þín og knýja hvert skref. Carbon plata í fullri lengd veitir skriðþunga sem hjálpar þér að halda mjúkum skrefaskiptum og takast á við beygjur af öryggi. Samfelld ZoomX froða skapar afar létta og mjúka tilfinningu og hjálpar þér að halda þægindum frá fyrsta kílómetra og alla leið í mark. Hvað er nýtt við Alphafly 3? Alphafly 3 er léttasti Alphafly skórinn til þessa. Hann er með aðeins breiðari carbon plötu fyrir aukinn stöðugleika, samfellda ZoomX millisóla fyrir mýkri skrefaskipti og nýja AtomKnit yfirbyggingu sem bætir stuðning í allar áttir og eykur öndun. Upplýsingar um vöru: Þyngd: u.þ.b. 174 g (kvennaskór UK 5.5) Hæðarmunur frá hæl til táar: 8 mm
Um vörumerkið
Nike er amerískt íþróttavörumerki sem var stofnað árið 1964 af frjálsíþróttamanninum Phil Knigt og þjálfara hans Bill Bowerman í Beaverton Oregon. Í upphafi hét fyrirtækið Blue Ribbon Sports eða allt til ársins 1971 þegar nafninu var svo breytt í NIKE eins og við þekkjum það í dag. Núna er NIKE stærsta íþróttavörumerki í heiminum.