Karfan er tóm.
14 daga greiðslufrestur er í boði fyrir þessa vöru.
Verðskrá Síminn Pay má finna hér.
Miðað við greiðslur á vöxtum.
lántökugjald og færslugjald á mánuði.
Árleg hlutfallstala kostnaðar:
Heildarkostnaður:
Meira um vöruna
Lyftu, hlauptu og hreyfðu þig að vild í Nike Free Flex, skónum sem gefur þér frelsi til að velja þína eigin æfingaleið. Fjölhæf hönnun skósins opnar á fjölmarga möguleika í þjálfun, með léttari yfirbyggingu og sveigjanlegum eiginleikum sem styðja við náttúrulegar hreyfingar. Sveigjanlegur gúmmísóli með raufum í framfóti gerir hreyfingar náttúrulegri og mýkri, hvort sem þú ert í styrktaræfingum, léttu hlaupi eða fjölþjálfun. Millisóli úr froðu í fullri lengd veitir hóflega dempun og þægindi, á meðan teygjanlegt band um hælinn eykur stuðning og stöðugleika án þess að skerða hreyfigetu. Yfirbyggingin er úr léttu og loftræstu netefni sem veitir stuðning án þess að þyngja skóna, og mjúkur netkragi um ökklann tryggir þægilega tilfinningu allan æfingatímann.
Um vörumerkið
Nike er amerískt íþróttavörumerki sem var stofnað árið 1964 af frjálsíþróttamanninum Phil Knigt og þjálfara hans Bill Bowerman í Beaverton Oregon. Í upphafi hét fyrirtækið Blue Ribbon Sports eða allt til ársins 1971 þegar nafninu var svo breytt í NIKE eins og við þekkjum það í dag. Núna er NIKE stærsta íþróttavörumerki í heiminum.