Karfan er tóm.
14 daga greiðslufrestur er í boði fyrir þessa vöru.
Verðskrá Síminn Pay má finna hér.
Miðað við greiðslur á vöxtum.
lántökugjald og færslugjald á mánuði.
Árleg hlutfallstala kostnaðar:
Heildarkostnaður:
Meira um vöruna
Farðu mjúklega úr æfingu og inn í daginn með þessari fjölhæfu hettupeysu. Hún er úr léttu og teygjanlegu NanoKnit-efni sem er einstaklega mjúkt viðkomu, þökk sé fíngerðum þráðum og þéttri prjónun. Efnið er parað við rakadræga Nike Dri-FIT-tækni og UV-vörn, sem gerir peysuna að áreiðanlegri flík bæði í hreyfingu og dagsdaglegri notkun. Kengúruvasi að framan er með innbyggðum minni vasa fyrir smáhluti, á meðan útsaumaðar loftgötur undir handleggjum bæta loftræstingu og hjálpa til við að halda þér svalri. Breytt raglan-ermasnið veitir frjálsa hreyfigetu og lágprofílsaumar tryggja mjúka og þægilega tilfinningu. Útsaumað Swoosh-merki setur sportlegan og fágaðan svip á hönnunina. Upplýsingar um vöruna: 90% pólýester, 10% elastan Hettan: 75% pólýester, 13% bómull, 12% rayon.
Um vörumerkið
Nike er amerískt íþróttavörumerki sem var stofnað árið 1964 af frjálsíþróttamanninum Phil Knigt og þjálfara hans Bill Bowerman í Beaverton Oregon. Í upphafi hét fyrirtækið Blue Ribbon Sports eða allt til ársins 1971 þegar nafninu var svo breytt í NIKE eins og við þekkjum það í dag. Núna er NIKE stærsta íþróttavörumerki í heiminum.